Log In
Register

Friðþæging blýþungra hjartna Lyrics

Misþyrming - Söngvar elds og óreiðu
Band
Album

Söngvar elds og óreiðu

(2015)
TypeAlbum (Studio full-length)
GenresBlack Metal
Ranked#92 for 2015 , #3,299 all-time
Album rating :  90 / 100
Votes :  4
6. Friðþæging blýþungra hjartna (6:49)
Dans örvinglaðra anda
undir festingu fjörvana stjarna.
Ellin dregur dauðann á langinn.
Aðframkomið hold
verður frjóvgandi mold
fyrir ættliði volaðra ævidaga.
Þeir þrá að sleppa frá eymd sinni
en stjörnurnar reynast of fjarlægar…

Ættliður helgra afglapa, velkist í frelsarans nafni.
Hátt stíga eldar í neðra, uppljómun morugra hvela.
Tár iðrunar falla til fóta, friðþæging blýþungra hjartna.
Fár volaðra lima og anda, skuggsjá hins himneska Herra.

Vonin smýgur þeim úr greipum,
uppljómun spírals blýþungra hjartna
óslitin hringganga helgispjalla
um ókomna tíð.
Aðframkomið hold
verður frjóvgandi mold
fyrir ættliði volaðra ævidaga.
Eldur, hlána, járn, kal
og þreifandi myrkur er það
sem koma skal.
Share on Facebook
Share on Twitter
Added by level 21 차무결
Misþyrming - Söngvar elds og óreiðu
Söngvar elds og óreiðu - Lyrics
▶   6.  Friðþæging blýþungra hjartna Lyrics8.  Ég byggði dyr í eyðimörkinni Lyrics
Info / Statistics
Artists : 46,177
Reviews : 10,029
Albums : 165,589
Lyrics : 216,954