Log In
Register

Miðgarðsormur Lyrics

Skálmöld - Börn Loka
Band
Album

Börn Loka

(2012)
TypeAlbum (Studio full-length)
GenresViking Metal, Folk Metal
LabelsNapalm Records
Album rating : 
Votes :  0
6. Miðgarðsormur (5:19)
Sjórinn rauður sýður.
Í sortanum hann bíður.
Dagrenning og dauðastormur,
í djúpinu er Miðgarðsormur.

Gakktu út á gróinn núp,
gáðu hvað mun prýða undirdjúp.
Þarna yfir sjó og sand
sérðu áfram líða Jörmundgand.

Mæli ég því mikill er,
Miðgarðsormur þræðir lönd og sker.
Hann sem mig skal hitta vill
hörfa þegar blæðir, kjarklítill.

Renni ég færinu í fyrsta sinni,
festi við þóftu í kænu minni.
Annað sinn kasta, hann ekki bítur,
ósnertri beitunni loks upp skýtur.

Höfuð nautsins Himinhrjóðs
Hilmar ormi færir, ei til góðs.
Bannvænn sýnist bitinn þó
blóðið Gandsins ærir hugarró.

Fylgja mun þér fegurð, ef
fellir orminn langa , sérhvert skref.
Eiturgusa æta má
ásjónu og vanga, tapi sá.

Þriðja sinn kasta og þá hann tekur,
þóftuna mölvar og bátinn skekur.
Færið skal dregið af fullum krafti,
fátækleg hönd móti ormsins kjafti.

Reipið sker, gatar glófa.
Gegnum fer, særir lófa.
Krókur í kjaftinn rífur,
krækjan því sker sem hnífur.

Áfram þeir berjast báðir,
bræður tveir, þreyttir, þjáðir.
Takast á, tíminn líður,
tengir þá strengum stríður.

Höfuðið birtist í hafsins róti,
heggur í bátinn og streitist á móti.
Blaðinu sting svo að blóð út stekkur,
bölvandi skepnan í hafrótið sekkur.

Þegar hitti Þór
þá munum við berjast.
Staðfastur og stór
standa mun og verjast.

Agnið beit víst á,
Ásgarður mig svíkur.
Jörmundgandur, já,
ég er sá sem víkur.

Báru klýfru bátur
og bátsmaður er kátur.
Landið tekur, fleyið festir,
þar fljúga yfir nokkrir þrestir.

Aftru skepnan skríður
í skjól og þar hann bíður.
Létti til og lægði storminn
er lagði Hilmar Miðgarðsorminn.
Share on Facebook
Share on Twitter
Added by level
Skálmöld - Börn Loka
Börn Loka - Lyrics
1.  Óðinn Lyrics2.  Sleipnir Lyrics
3.  Gleipnir Lyrics4.  Fenrisúlfur Lyrics
▶   6.  Miðgarðsormur Lyrics7.  Narfi Lyrics
8.  Hel Lyrics9.  Váli Lyrics
10.  Loki Lyrics
Info / Statistics
Artists : 46,089
Reviews : 10,026
Albums : 165,355
Lyrics : 216,849